Forsíða Eldri fréttir
Allar eldri fréttir
Bembel Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: ritstjori   
Mánudagur, 14. nóvember 2011 23:52

Fyrsti Bembel ársins var haldinn heima hjá Valla með glæsibrag.  Ekki voru teknar neinar myndir, en fullyrt er að allt fór vel fram.  Frábærar veitingar (takk Natalia) og nóg að drekka.  Næsti Bembel fór til Arnars, en sá siður er með Bembel er að sá sem fer fyrstur heim, verður að halda næsta Bembel.

Ákveðið er núna að Valli og Arnar, sjái um að koma reglum um Bembel á rt8.is fyrir lok árs 2011.
 

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 15. nóvember 2011 00:04
 
Út fyrir boxið Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: ritstjori   
Mánudagur, 14. nóvember 2011 22:45

Seinasti fundur áttu manna, má segja að hafi verið harla óvenjulegur.  

Fengu allir ákveðið hlutverk sem þeir áttu að halda allann fundinn.  Meðal persóna sem mættu voru, bjálaði húsvörðurinn, Jóhanna Sig, fulli karlinn, bóndinn, sjálfstæðismaðurinn, Bubbi, þýskur læknir, Hans sem kann dans, fröken beint úr sveitinni, hommar, blóðsuga, fúli karlinn, bókarinn og margir fleiri.

Var þetta með fjölsóttari fundum, en alls voru 23 skráðir og mættir til fundar. 

Guðrún Ásmundsdóttir, tók á móti okkur í Iðnó, sagði okkur merka sögu hússins, ásamt því að fá okkur til að stíga út úr kassanum og losna við feimnina.  Fengu flestir að stíga uppá svið og leyfa sínum karakter að skína í gegn.  
Vorum við heppnir að hafa húsvörðinn þegar að fulli karlinn hrundi á fætur og gerði sig líklegann til að míga út í eitt hornið.  Náði hann með sínum prikum að pota viðkomandi aftur í sinn stól þar sem hann sönglaði fylleríis söngva.

Viljum við þakka Guðrúnu Ásmundsdóttur og Iðnú fyrir að skapa með okkur frábært kvöld.

Síðast uppfært: Mánudagur, 14. nóvember 2011 23:15
 
Verkefnafundur vegna Eurotrip 2012 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: ritstjori   
Fimmtudagur, 12. maí 2011 09:35

Eurotrip 2012

Aukafundur 18 maí 2011.

Á síðasta fulltrúarráðsfundi sem haldinn var í Keflavík, var ákveðið að RT8 tæki að sér Pretour'inn fyrir næstu árshátíð.

Hvað er Pretour og hvað þýðir þetta fyrir okkur?

Pretour'inn er fyrir útlendingana sem koma á Roundtable árshátíðina 2012.

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 26. maí 2011 15:28
Nánar...
 
Hörður Harðarson nýr formaður RT-8 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Leifur Björn Björnsson   
Sunnudagur, 01. maí 2011 18:47

Hörður Harðarson formaðurHörður hefur tekið við formennsku RT-8 fyrir næsta starfsár. Við höfum mikla trú á forystuhæfileikum hans og uppátækjum.  Til hamingju formaður Hörður.


Síðast uppfært: Fimmtudagur, 26. maí 2011 15:32
Nánar...
 
Jeppaferð í Karlagil Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Leifur Björn Björnsson   
Mánudagur, 25. október 2010 21:08

Kæru félagar.

Þetta var stórkostleg jeppaferð og ber að þakka jeppaferðanefndinni vel fyrir góð störf.  Ég tók hér saman smá vídeo um ferðina sem rifjar upp góðar minningar frá frábærri ferð.  Góða skemmtun.

Síðast uppfært: Sunnudagur, 01. maí 2011 18:59
Nánar...
 


Joomla template by a4joomla