Velkomnir Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: ritstjori   
Fimmtudagur, 26. ágúst 2010 21:34

Sælir félagar og velkomnir á nýjan og glæsilegan vef RT8 á Íslandi.  Ritstjóri vefsins ætlar að taka starfi sínu mjög alvarlega í vetur og munu fréttir birtast hér reglulega.  Allar hugmyndir, tillögur, slúður, sögur, fréttir oþh. eru vel þegnar.  Senda má póst á ritstjóra hvenær sem er sólarhringsins allan ársins hring.  


Veturinn leggst gríðarlega vel í mig og dagskráin er einstaklega spennandi.  Ritstjóri vill einnig minna menn á að horfa í kringum sig að nýliðum fyrir komandi starfsár.  Í klúbbnum eru núna 13 félagar og stefnan sett á c.a. 20 manns svo að allir verða að leggjast á eitt og finna góða félaga til að mæta á fyrstu fundi vetrarins, enn  í ár verður nýlliða kynning með breyttu sniði og dreifist hún á fyrstu 3-4 fundi.  Einnig vill ritstjóri minna á mætingarskyldu á fundi og að mikilvækt er að boða forföll tímanlega.  Annars sjáumst við bara eldhressir og kátir á fyrsta fundi sem verður þann 08.09.10. 

p.s. minni svo aftur á að ritstjóri tekur á móti heitasta slúðrinu og fréttum allan sólarhringinn.

Kveðja

Ritstjóri RT8

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 26. ágúst 2010 23:30
 
Joomla template by a4joomla