Forsíða Klúbburinn Fundargerðir
Fundargerðir
Fundur 448 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: ritstjori   
Fimmtudagur, 17. nóvember 2011 00:21

Fundargerð fyrir fund nr. 448 þann 16. nóvember 2011 "Bökum fyrir jólin"

Á fundinn mættu Hörður, Leifur, Davíð, Georg, Þorsteinn, Eiríkur, Heiðar, Sigurbjörn, Arnar ásamt tveimur gestum. 

Hist var í Álftanesskóla.  Fundurinn hófst 19:35 og kláraðist 22:35.

Formaður setti fundinn og setti stjórn fundar í hendur varaformanns.  Byrjað var á því að baka jólakökur undir sterkri stjórn Ernu og Maríu.  Þökkum við þeim fyrir frábærann undirbúning og þeirra vinnu við að kenna okkur á baksturinn.  Eins viljum við þakka skólastjórninni á Álftanesi fyrir aðstöðuna.

Okkur var skipt í 6 hópa og hófumst menn handa við að baka.  Einn hópurinn fór í að elda lamba fille fyrir alla hina.  Það er ekki hægt að setja út á tímasetninguna hjá liðunum, en þegar allir voru búnir að raða síðustu kökunum á ofnskúffuna, var matarhópurinn búinn að galdra fram þessa dýrindis máltíð.

Þorsteinn átti 3 mínútur og valdi umræðuefnið, hvort eigi að sameina Álftanes, Garðabæ.

 Voru skiptar skoðanir á hvort þetta væri sniðugt eða ekki, en hópurinn var samkvæmt samantektinni hjá Þorsteini, frekar á því að sameiningin ætti að eiga sér stað.  Tveir menn skiluðu sér áliti og fengu sekt siðameistara fyrir, annar fyrir að vera hel blár og hinn fyrir að tala endalaust um garða.

Önnur mál.

  • Tilkynnt var formlega að Georg væri hinn nýráðni Stallari klúbbsins
  • Rætt var um jólafundinn og er hann 17 desember.  Var enginn nema nýráðinn nefndarmaður mættur frá jólanefndinni, svo beðið er til næsta fundar að ræða við Sólberg og Halldór um jólafundinn.
  • Rætt var um að hafa sérstakann pylsu fund milli jóla og ný árs.  Var það sett til Heiðars að finna skip.
  • Rætt var um Færeyjar förina.  Formaður sendir út póst næsta dag og mun þar koma fram allar þær upplýsingar um ferðina sem hægt er að fá frá Formanni hreyfingarinnar og IRO.
  • Davíð og Einar voru settir í það að finna gistingu handa þeim sem ætla að fara.  Einnig verða allir sem ætla að fara að láta vita fyrir dagslok 17 nóvember.
  • Georg kom með snilldar hugmynd sem var vísað til varaformanns, að hafa börnin með á næsta bökunarkvöldi eftir ár.
  • Siðameistari flutti skýrslu sína á sinn snilldarlega hátt og sektaði menn grimmt.

Fundi slitið.

Þeir sem vantaði á fundinn voru:
 
Sólberg, Halldór, Valli, Einar og Jón Fannar 

 
Síða 1 af 10
Joomla template by a4joomla